Translation missing: is.accessibility.skip_to_product_info
1 Translation missing: is.general.slider.of 1

BL+ The Cream Light

BL+ The Cream Light

Translation missing: is.products.product.price.regular_price 24,900 kr
Translation missing: is.products.product.price.regular_price Translation missing: is.products.product.price.sale_price 24,900 kr
Translation missing: is.products.product.on_sale Uppselt
VSK innifalinn
Stærð
Magn

Létt og áhrifaríkt andlitskrem þróað til að gefa húðinni langvarandi raka, koma á jafnvægi og draga úr sýnileika fínna lína. BL+ The Cream Light inniheldur einstaka samsetningu lífvirkra efna sem róa, auka þéttleika og slétta áferð húðar.

Virkni knúin áfram af okkar einstaka BL+ COMPLEX sem örvar nýmyndun kollagens og styrkir varnarlag húðar.

Fínar línur verða minna sýnilegar og jafnvægi kemst á húðina. Húðin verður rakafyllt, frísklegri og fær ljómandi yfirbragð.

  • Létt og mjúk áferð, formúla sem gengur hratt inn í húðina
  • Non-comedogenic, lokar ekki húðinni heldur andar vel
  • Prófað af húðlæknum
  • Án ilmefna
  • Rekjanleg innihaldsefni valin af ábyrgð
  • Hentar grænkerum
  • Hentar venjulegri, blandaðri eða olíukenndri húð. Getur einnig hentað þurri húð í heitara loftslagi eða húð kvenna sem ganga í gegnum hormónabreytingar breytingaskeiðsins.

Notkun

  1. Notið kvölds og morgna, eftir hreinsun, á andlit og háls.
  2. Berið með léttum strokum upp á við.
Translation missing: is.products.product.view_full_details