Lúxus fyrir þína húð hjá Mimos

Upplifðu Blue Lagoon Skin Science andlitsmeðferðir hjá Mimos – þar sem einstakar íslenskar húðvörur, fagleg nálgun og djúp slökun fara saman.

Meðferðirnar byggja á Blue Lagoon Skin Science vörum með lífvirkum efnum úr einstökum jarðsjó Bláa lónsins og eru sérsniðnar að mismunandi þörfum húðarinnar.

Í tilefni af þessari nýjung bjóðum við 15% kynningarafslátt af Blue Lagoon Skin Science andlitsmeðferðum og vörum.

  • Glow – klassísk andlitsmeðferð

    45 mín.

    Klassísk og endurnærandi andlitsmeðferð, sérsniðin að þörfum húðarinnar. Meðferðin sameinar slakandi andlitsnudd og vandlega valdar Blue Lagoon Skin Science vörur sem henta þinni húðgerð.

    Húðin verður endurnærð og náttúrulega ljómandi – notaleg endurstilling fyrir þreytta eða stressaða húð.

  • Radiance – lúxus heitsteinameðferð fyrir andlit

    60 mín.

    Djúpslakandi andlitsmeðferð sem sameinar húðumhirðu og einstaka slökun. Meðferðin felur í sér hreinsun, heitsteinanudd og maska sem er sérstaklega valinn eftir húðgerð.

    Húðin verður endurnærð, ljómandi og í fallegu jafnvægi á meðan líkaminn fær að slaka á.

  • Express andlitslyfting og slökun

    30 mín.

    Stutt en áhrifarík andlitsmeðferð sem sameinar hreinsun og endurnærandi nudd á andliti, hálsi og herðum.

    Gua Sha-tækni er notuð til að örva blóðrás, losa um spennu og styðja við náttúrulega mótun andlitsins. Húðin verður ferskari, stinnari og ljómandi.

  • BL+ húðslípun fyrir ljómandi húð

    30 eða 50 mín.

    Endurnýjandi andlitsmeðferð þar sem húðslípun veitir milda örslípun og örvar blóðflæði.

    Djúphreinsandi maski og virkar Blue Lagoon Skin Science BL+ vörur fullkomna meðferðina, bæta áferð og ljóma húðarinnar.

  • BL+ RF lyftimeðferð

    60 mín.

    Markviss andlitsmeðferð sem vinnur dýpra í húðinni með RF-tækni og styður við náttúrulega kollagenmyndun.

    Meðferðin hjálpar til við að bæta þéttleika húðarinnar, mýkja ásýnd fíngerðra lína og gefa húðinni lyftara og ferskara yfirbragð. Virkar Blue Lagoon Skin Science BL+ vörur veita húðinni jafnframt næringu, raka og aukinn ljóma.

  • BL+ lúxus andlitsmeðferð

    60 mín.

    Öflug og endurnýjandi andlitsmeðferð sem sameinar húðslípun, RF lyftimeðferð og virkar Blue Lagoon Skin Science BL+ húðvörur.

    Meðferðin vinnur bæði með yfirborð húðarinnar og dýpri lög hennar með áherslu á að bæta áferð, teygjanleika og ljóma.

  • BL+ lúxus endurnýjunarmeðferð

    90 mín.

    Glæsileg og umfangsmikil andlitsmeðferð sem sameinar djúpa húðhreinsun, húðslípun, RF lyftimeðferð og mótandi nudd fyrir andlit, háls og herðar.

    Heitir steinar og olíunudd bæta við djúpri slökun á meðan meðferðin vinnur markvisst að auka raka, jafna áferð, þéttleika og ljóma húðarinnar.