RF húðþétting fyrir þéttari og stinnari húð

Með tímanum, eftir þyngdarbreytingar eða aðrar breytingar á líkamanum getur húðin misst hluta af sínum náttúrulega stinnleika. RF húðþétting notar stýrða hitaörvun til að styðja við kollagenmyndun og bæta þannig áferð og þéttleika húðarinnar.

Meðferðina má nota bæði á andlit og líkama, meðal annars á háls, maga, læri og handleggi. Hún getur einnig hjálpað til við að draga úr ásýnd appelsínuhúðar og gefa húðinni stinnara og jafnara yfirbragð.

Bóka Radiofrequency

Um Radiofrequency húðþéttimeðferð

Hvernig virkar Radiofrequency (RF)?

RF-tækni, eða radiofrequency, notar útvarpsbylgjur til að mynda stýrðan hita í húðvefnum. Hitinn örvar náttúruleg viðbrögð húðarinnar, styður við kollagenmyndun og getur hjálpað vefjum að dragast saman. Með tímanum getur þetta stuðlað að stinnari húð, auknum þéttleika og jafnari áferð.

Gott rakajafnvægi líkamans styður við meðferðina og því er mikilvægt að drekka vel af vatni bæði fyrir og eftir tíma.

Hverjir eru helstu kostir RF?

RF húðþétting getur meðal annars:

- Stutt við stinnleika og þéttleika húðar
- Bætt áferð og yfirbragð húðar
- Dregið úr ásýnd slakrar húðar
- Stutt við náttúrulega kollagenmyndun
- Hjálpað til við að draga úr ásýnd appelsínuhúðar
- Hjálpað til við að skerpa útlínur á ákveðnum svæðum
- Hentað bæði fyrir andlit og líkama

Meðferðin er án skurðaðgerðar og almennt er ekki þörf á sérstökum bata­tíma.

Hvaða árangri má búast við?

RF húðþétting vinnur með náttúrulegum ferlum húðarinnar og því kemur árangurinn yfirleitt fram smám saman.

Sum finna fyrir auknum stinnleika tiltölulega fljótt, en kollagenmyndun heldur áfram eftir meðferð og getur árangurinn því þróast áfram næstu vikur og mánuði.

Árangur er einstaklingsbundinn og ræðst meðal annars af húðástandi, aldri, meðferðarsvæði og fjölda meðferða.

Hversu oft þarf að koma?

Algengt er að mælt sé með 4–6 meðferðum til að ná sem bestum árangri.

Yfirleitt líða að minnsta kosti tvær vikur á milli meðferða, en meðferðaráætlun er alltaf metin út frá húð, meðferðarsvæði og markmiðum hvers og eins.

Árangurinn getur haldið áfram að þróast í allt að nokkra mánuði eftir meðferðarlotu.

Hvernig á að undirbúa sig?

Gott rakajafnvægi er mikilvægt fyrir RF-meðferð.
Fyrir meðferð er gott að:

- Drekka vel af vatni dagana fyrir tímann
- Halda húðinni vel rakri
- Mæta með hreina húð á meðferðarsvæðinu
- Láta meðferðaraðila vita af lyfjum, heilsufarsatriðum eða öðrum þáttum sem gætu haft áhrif á meðferðina

Mælt er með góðri vatnsdrykkju, um 2 lítrum á dag í nokkra daga fyrir meðferð, ef ekkert heilsufarslegt mælir gegn því.

Hvað þarf að hafa í huga eftir tímann?

Vægur roði, hiti eða lítilsháttar bólga getur komið fram tímabundið eftir meðferð.

Eftir tímann er gott að:
- Drekka vel af vatni næstu daga
- Halda húðinni vel rakri
- Forðast mikla áreynslu, heit böð og sund sama dag
- Vernda meðferðarsvæðið fyrir sterkri sól
nota góða sólarvörn ef svæðið verður fyrir sólarljósi

Húðin jafnar sig yfirleitt fljótt og flest geta farið beint aftur í daglegar athafnir.

Hvenær hentar meðferðin ekki?

RF-meðferð hentar ekki öllum og því er mikilvægt að fara yfir heilsufar áður en meðferð hefst.

Láttu meðferðaraðila sérstaklega vita ef um er að ræða:
- Meðgöngu
- Ígrædd raftæki, málm á, í eða nálægt meðferðarsvæði
- Sár, ertingu eða húðvandamál á svæðinu
annað heilsufarsástand sem gæti haft áhrif á meðferðina

Ef einhver vafi er til staðar metur meðferðaraðili hvort meðferðin henti eða hvort ráðlagt sé að bíða.

Má sameina RF húðþéttingu öðrum meðferðum?

Já. RF húðþétting getur verið hluti af stærri meðferðaráætlun og er oft hægt að sameina hana öðrum andlits- eða líkamsmeðferðum.

Mismunandi meðferðir vinna með ólíka þætti húðar og undirliggjandi vefja og því getur samsett meðferðaráætlun hentað vel þegar unnið er að ákveðnum markmiðum.

Meðferðaraðilar Mimos geta ráðlagt hvaða meðferðir og meðferðartíðni henta best fyrir hvert svæði og markmið.

Tilbúin að gefa húðinni aukinn stinnleika?

Hvort sem markmiðið er að vinna með slakari húð, bæta áferð hennar eða styðja við stinnara og jafnara yfirbragð getur RF húðþétting verið góður kostur.

Meðferðin er í boði fyrir bæði andlit og líkama og er löguð að því svæði og þeim markmiðum sem þú vilt vinna með.

Bókaðu RF húðþéttingu hjá Mimos og fáðu ráðgjöf um hvaða meðferðaráætlun hentar þér best.