IR LEAXER - Laser Mesotherapy

Laser Leaxer er háþróuð lasermeðferð sem vinnur með áferð, ljóma og þéttleika húðarinnar.

Með 1470 nm Er lasertækni er einnig hægt að vinna með bólótta húð, ójafna litamyndun og ummerki eftir bólur, ásamt því að styðja við náttúrulega endurnýjun húðarinnar.

Bóka IR Leaxer

Um IR LEAXER laser mesotherapy

Hvernig virkar IR LEAXER laser

Laser Leaxer notar 1470 nm Er lasertækni og fractional-tækni sem myndar örsmáar rásir í húðinni. Það styður við náttúrulega endurnýjun húðarinnar og getur hjálpað virkum innihaldsefnum að komast betur niður í hana.

Meðferðin örvar meðal annars framleiðslu kollagens og elastíns, sem stuðla að betri þéttleika og teygjanleika húðarinnar. Kæling með köldu lofti gerir meðferðina jafnframt þægilegri.

IR Leaxer býður upp á mismunandi meðferðir fyrir áferð, ljóma, litamyndun og þéttleika húðarinnar.

Soft Laser Peel - mild húðendurnýjun

Soft laser peel notar 1470 nm bylgjulengd til að endurnýja húðina á mildan og markvissan hátt. Meðferðin getur bætt áferð, ljóma og þéttleika án þess að fjarlægja ysta lag húðarinnar.

Laser Lift – lyftandi lasermeðferð
Laser Lift notar Er lasertækni til að örva kollagen og elastín. Meðferðin getur stutt við stinnara og þéttara yfirbragð án skurðaðgerðar eða inngrips undir húð.

Meðferð fyrir bólótta húð og ummerki eftir bólur

1470 nm Er lasertæknin er einnig notuð til að vinna með bólótta húð, bæði þegar bólur eru virkar og þegar eftir standa ummerki eða ójöfn áferð.

Laserorkan getur hjálpað til við að róa bólguviðbrögð í húðinni og styðja við náttúrulega endurnýjun hennar.

Jafnframt örvar meðferðin kollagenmyndun, sem getur hjálpað til við að bæta áferð húðar og draga úr ásýnd ummerkja eftir bólur.

Meðferðin er alltaf aðlöguð að ástandi húðarinnar og þeim markmiðum sem unnið er að.

Hverjir eru helstu kostir IR LEAXER?

Laser Leaxer vinnur með 1470 nm fractional lasertækni og býður upp á nákvæma og stýrða meðferð. Með sömu tækni er hægt að vinna að ólíkum markmiðum, svo sem áferð húðar, ljóma, þéttleika og ójafnri litamyndun.

Fractional-tæknin myndar örsmáar rásir í húðinni og örvar um leið náttúrulega endurnýjun hennar og framleiðslu kollagens og elastíns.

Kæling með köldu lofti er notuð samhliða til að auka þægindi meðan á meðferð stendur.

Er árangurinn varanlegur?

Ekki er hægt að líta á árangur lasermeðferða sem varanlegan í þeim skilningi að húðin hætti að breytast.

Húðin heldur áfram að eldast og verður áfram fyrir áhrifum frá meðal annars sólarljósi, lífsstíl og náttúrulegum breytingum líkamans.

Áhrif meðferðarinnar geta hins vegar þróast áfram eftir tímann þar sem endurnýjunarferli húðarinnar og kollagenframleiðsla taka tíma.

Viðhaldsmeðferðir geta hentað síðar eftir þörfum og markmiðum hvers og eins.

Hversu oft þarf að koma?

Það fer eftir ástandi húðarinnar, því svæði sem unnið er með og markmiðum meðferðarinnar.

Sumir geta verið ánægðir með breytingar eftir fáa tíma á meðan aðrir kjósa meðferðarkúr yfir lengra tímabil.

Meðferðaráætlun er því best ákveðin einstaklingsbundið eftir mati á húð og þeim árangri sem óskað er eftir.

Hvernig á að undirbúa sig?

Gott er að koma með hreina húð og forðast mikla sól og sólbrúnku fyrir meðferðina.

Láttu meðferðaraðila vita fyrir tímann ef þú ert að nota lyf eða húðvörur sem geta aukið ljósnæmi húðar, ef þú hefur nýlega farið í aðra öfluga húðmeðferð eða ef þú ert með viðkvæma, særða eða ertaða húð á svæðinu sem á að meðhöndla.

Einnig er mikilvægt að láta vita ef þú færð gjarnan frunsur, sérstaklega ef meðhöndla á svæði í kringum munn.

Hvað þarf að hafa í huga eftir tímann?

Húðin getur verið viðkvæmari en venjulega fyrst eftir lasermeðferð. Mikilvægt er að vernda húðina vel fyrir sólinni, nota góða sólarvörn og halda henni vel rakaðri.

Forðast ætti vörur eða meðferðir sem geta ert húðina meðan hún er að jafna sig.

Meðferðaraðili gefur nánari leiðbeiningar eftir tímann út frá þeirri meðferð sem framkvæmd var og viðbrögðum húðarinnar.

Hvenær hentar meðferðin ekki?

Lasermeðferð hentar ekki öllum og því er mikilvægt að fara yfir heilsufar, lyfjanotkun og ástand húðar áður en meðferð hefst.

Meðferð er almennt ekki framkvæmd á svæði þar sem er virk sýking, opin sár eða mikil erting. Einnig þarf að meta sérstaklega meðferð hjá þeim sem eru mjög sólbrúnir, hafa nýlega fengið mikla sól, eru með sögu um óeðlilega örmyndun eða taka lyf sem geta aukið ljósnæmi eða haft áhrif á gróanda húðar.

Lasermeðferðir eru almennt ekki framkvæmdar á meðgöngu.

Ef einhver vafi er á því hvort meðferð henti er mikilvægt að ræða það við meðferðaraðila áður en tími er bókaður.

Tilbúin að prófa IR LEAXER Mesotherapy?

Gefðu húðinni aukna umhirðu með markvissri meðferð sem styður við endurnýjun, ljóma og þéttleika húðarinnar.

Bókaðu tíma og finndu út hvort meðferðin henti þinni húð.